Ætli það sé ekki eitthvað til í þessu!!

 Tókum þessa umræðu aðeins fyrir í Tívolí á laugardaginn - unglinga og hvernig framkoman er orðin í dag! hvort hún se eðlileg og hvert stefnir í .. enn fengum við þa sent þetta á mailið okkar  og er alveg sprenghlæjilegt!! 

Hollt fyrir “unglingana” í dag ;)  

Bill Gates hélt fyrirlestur fyrir unglinga í gagnfræðaskóla í Bandaríkjunum. Hann talaði um reglurnar 11 sem þau hafa ekki og munu ekki læra um í skólanum.

Hann talaði um agaleysi og nýjar áherslur í kennslu sem munu skila nýrri kynslóð út í þjóðfélagið, dæmdri til að mistakast.

Regla 1: Lífið er ekki réttlátt, reyndu að venjast því.

Regla 2: Veröldinni er sama um þitt sjálfsálit. Allir ætlast til að þú áorkir einhverju áður en þú ferð að vera ánægð/ur með sjálfa/n þig.

Regla 3: Þú munt ekki þéna 4 milljónir á ári strax þegar þú útskrifast úr skóla og þú verður ekki framkvæmdastjóri fyrr en þú hefur unnið fyrir því.

Regla 4: Ef þér finnst kennarinn þinn strangur og erfiður, bíddu þangað til að þú færð yfirmann.

Regla 5: Að snúa hamborgurum á skyndibitastað er ekki fyrir neðan þína virðingu. Amma þín og afi áttu til annað orð yfir það að snúa hamborgurum. Þau kölluðu það TÆKIFÆRI.

Regla 6: Ef þú klúðrar, þá er það ekki foreldrum þínum að kenna svo hættu að væla og lærðu af mistökunum.

Regla 7: Áður en þú fæddist þá voru foreldrar þínir ekki svona leiðinleg eins og þau eru núna. Þau urðu svona eftir að hafa borgað fyrir uppeldi þitt, þvo fötin þín, þrífa til draslið eftir þig og hlusta á hvað þú ert COOL og þau eru hallærinsleg. Svo áður en þú og vinir þínir bjarga regnskógunum og leysið heimsmálin, reyndu þá að taka til og koma reglu á herbergið þitt.

Regla 8: Það getur vel verið að skólinn útskrifi bæði sigurvegara og tapara en lífið gerir það EKKI. Í sumum skólum er hægt að taka sama prófið aftur og aftur. Þannig er þetta ekki úti í atvinnulífinu.

Regla 9: Lífið skiptist ekki í annir og þú munt ekki hafa frí öll sumur. Mjög fáir samstarfsmenn munu hafa áhuga á að hjálpa þér að finna sjálfan þig. Gerðu það í þínum eigin tíma !

Regla 10: Sjónvarpið er ekki raunveruleikinn. Í raunveru-leikanum þarf fólk í alvörunni að yfirgefa kaffihúsið og fara í vinnuna.

Regla 11: Vertu NICE við nördana í skólanum, það endar mjög líklega með því að þú þarft að vinna hjá einhverjum þeirra.

THAT’S LIFE


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband